26júlí
raunveruleikinn eða bara facebook?
Ég hef mikið verið að velta fyrir mér hvernig facebook hefur breytt hvernig við höfum samskipti við fólk. Ég hef tekið mikið eftir því að það er ekki eins mikið hringt í mann... heldur fylgist fólk bara með á facebook... (ég get nú alveg viðurkennt að það er þannig líka með mig því miður).Hver hefur til dæmis ekki sagt: "já, ég veit, ég sá það á facebook! "
Það sem maður verður að passa sig á er að það sem þú lest á facebook er ekki raunveruleikinn, jújú það er til fólk sem skrifar endalausa statusa um allt, maður getur eiginlega fylgst með þrifasögu og hvað mikið manneskjan borðar á dag.. og einnig hvernig manneskjunni líður inni í sér og utan... bla bla...
spurningin er samt sú.. er þetta virkilega það sem manneskjan vill segja? Þú getur til dæmis skrifað á facebook: ÉG ER SVO ÆÐISLEGA ÁNÆGÐ Í DAG!! FRÁBÆRT LÍF (með caps of course) en aðilinn gæti verið að grenja svo mikið að lyklaborðið er farið að finna fyrir því :)
allavega, þetta er smá pæling þar sem ég er svo hrikalega þreytt á að vita hvað allir eru að fara að gera og búnir að gera og sjá það einnig á myndum... það er eiginlega ekkert mikið eftir að ræða um ef þú þá loksins hittir manneskjuna....
Sem dæmi um týpískt samtal:
Persóna 1: Nei hæ! langt síðan maður hefur séð þig! Hvað er að frétta?
Persóna 2: Já bara þetta venjulega, bara á fullu að vinna og svona...
1: jáá..... einmitt... semsagt allt í góðu?
2: jábbs.... en hvað með þig? Ég sá á facebook að þú ert að vinna hjá (bla) og ert síðan að fara að gera (bla) í haust...
1: Jú það passar... voða spennandi sko.. ég sá að þú fórst í ferðalag til (bla) í vetur, var ekki alveg æðislegt þarna?
2: það var rosalega gaman.. ertu búin/n að skoða myndirnar sem ég er með á facebook?
1: jú einmitt.. rosalega fyndar og flottar.
2: já... en við sjáumst
1: já ok... bless bless....
ég efast um að ég sé sú eina sem lendir í svona samtali ef þú ert ekki búin að hitta manneskjuna lengi lengi og einu samskiptin sem þið hafið haft í nokkur ár eru í gegnum status update á facebook...
sé ykkur á fb ;)
